OKKAR SAGA
Eigandinn heitir Jaeyoon Kim og er fæddur og uppalinn í Seúl í Suður-Kóreu. Eftir að hafa búið á Íslandi sá hann hversu erfitt það getur verið að nálgast k-pop albúm og aðrar tengdar vörur. Þess vegna ákvað hann að stofna vefverslun þar sem það er auðveldara og ódýrara að finna fjölbreyttar k-pop vörur. Teymið okkar á Íslandi samanstendur af eigandanum og Kristjönu K. Ottesen sem sér um hönnun og markaðssetningu á Íslandi. Hún er sjálf með B.A. gráðu í Kóreufræði og hefur reynslu frá K-pop bransanum. Svo erum við með fjölbreytt starfsfólk sem er staðsett í Kóreu, þar á meðal Sung Ho Kim og tvo aðra, sem sér meðal annars um að finna og senda þær vörur sem þú leitar að til okkar.
Fyrir þá sem hafa áhuga, þá þýðir „ÍUM", nafn verslunarinnar okkar, „tenging“ á kóresku. Það er skrifað 이음 (ee-eum) og borið fram nákvæmlega eins og nafnið ÍUM á íslensku. Við völdum þetta nafn því við viljum vera sú brú sem tengir Suður-Kóreu og Ísland best og traustast.